AÐRAR VÖRUR
10.6.2010 - Ný flugusending í hús í dag

Góðar flugur þurfa ekki að vera á uppsprengdu verði


Í síðustu viku tókum við upp silungaflugur, straumflugur, votflugur og púpur.

Í dag opnar Flugan nýja sendingu með laxaflugum og túpum.  Í þessari sendingu er gott úrval af vönduðum og vel hnýttum flugum á góðu verði.

Við vonumst til að flestar flugur nýju sendingarinnar verði tilbúnar í sölu nú strax um helgina og að sjálfsögðu á góðu verði.

Myndin með þessari frétt er af flugunni Kill Bill sem er nú væntanleg í sölu hjá Flugunni ásamt fjölda annarra og hér að neðan má sjá hinar vinsælu HKA Sunray túpur sem veitt hafa fantalega vel síðastliðin ár, ekki síst í Rangánum.  HKA Sunray túpurnar eru hannaðar af Henrik Kassow Andersen sem hefur veitt hér á landi og stundað veiðileiðsögn í mörg ár.

 

Deila |


Til baka

www.flugan.is - Netverslun fluguveiðimannsins - flugan@flugan.is