AÐRAR VÖRUR
Um okkur

Flugan.is er lítil og einföld sérverslun á internetinu ætluð fluguveiðimönnum.

Markmið með stofnun þessarar netverslunar er að bjóða gott úrval af vönduðum, vel hnýttum og veiðnum flugum á góðu verði.  Einnig hefur Flugan.is á boðstólum úrval af smáhlutum ætluðum fluguveiðimönnum svo og sitthvað til fluguhnýtinga.

Ekki stendur til að bjóða stærri hluti á borð við stangir, vöðlur, skó og fatnað hjá Flugunni, eða a.m.k. ekki til að byrja með.

Rekstraraðili Flugunnar er Bráð ehf., kt. 420398-2049, til heimilis að Síðumúla 8, 108 Reykjavík.  Virðisaukaskattnúmer Bráðar er 57532.

Bráð ehf. er í eigu Ólafs Vigfússonar og Maríu Önnu Clausen en þau hafa stundað fluguveiði í áratugi og þjónustað veiðimenn árum saman.

Hafir þú spurningar skaltu sendia okkur línu á flugan@flugan.is eða með skilaboðakerfinu hér á vefnum.

Þakka þér fyrir að líta við í sérverslun fluguveiðimannsins á netinu.  Við erum þér þakklát fyrir það.

Veiðikveðjur,
María og Óli

 


www.flugan.is - Netverslun fluguveiðimannsins - flugan@flugan.is